Skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir 8-12 ára krakka þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum söng og tjáningu. Einnig er mikil áhersla lögð á að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar, skapandi leiki og jóga. Hver og einn velur sér eitt lag til að vinna með á námskeiðnu og síðasti tíminn er síðan “opin æfing” þar sem aðstandendur eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig þjálfast börnin í að syngja saman í kór og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngva.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Túlkun, tjáning og framkoma
- Textaskilningur
- Syngja saman í kór
- Að syngja í röddum
- Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk t.d. öndunaræfingar
- Leiklistarspuna
- Einfaldar jógaæfingar
- Að syngja í míkrafón
Praktísk atriði:
- Hvenær: 24. – 28. júní og 12. – 16. ágúst kl. 09:00 – 12:00
- Hvar: Víkurhvarf 1, 203 Kópavogi
- Lengd námskeiðs: 15 klukkustundir
- Verð: 29.900
- Kennarar: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir og María Dalberg.
- Hámarksfjöldi í hóp: 14
- Aldurstakmark: 8-12 ára