SKILMÁLAR VOCALIST
Ef viðskiptavinur kaupir einkatíma, námskeið eða kór áskrift hjá Vocalist samþykir hann eftirfarandi skilmála.
Skólagjöld
Staðfestingargjald er 20% af heildarverði og ef afbókun berst áður en námskeið hefst er mismunurinn endurgreiddur.
Skólagjöld fást ekki endurgreidd eftir að námskeið eða einkatímar hefjast. Ef þátttakandi hættir á námskeiði er hann búinn að skuldbinda sig til að greiða fullt gjald. Þetta á líka við um kórastarf.
Í kórastarfi geta nýir meðlimir komið á eina prufu æfingu í september, án endurgjalds.
Vocalist áskilur sér rétt til þess að breyta skólagjöldunum á milli anna.
Einkatíma þarf að nýta á þeirri önn sem þeir eru keyptir, eftir það renna þeir út.
Afbókun
Ef einkatími er afbókaður með minna en 24 klst. fyrirvara skal greitt fyrir hann að fullu og kennara er ekki skylt að bæta upp tímann.
Nemandi skal tilkynna forföll um leið og þau koma upp.
Ekki er hægt að bæta upp hóptíma sem nemandi missir af.
Ef kennari forfallast er honum skylt að bæta upp tímann.
Systkinaafsláttur
• Í þeim tilfellum þar sem systkini undir 18 ára aldri stunda nám hjá Vocalist er veittur 20% afsláttur fyrir annað systkin. (Gildir ekki með tilboðum)
Námskeið/Kórastarf
Vocalist áskilur sér rétt til að hagræða auglýstri dagskrá á námskeiðum.
Kórastarf skal vera í það minnsta 12 æfingar á haustönn og 15 æfingar á vorönn.
Trúnaður
Starfsfólk Vocalist heitir fullum trúnaði á persónulegum upplýsingum sem koma fram í einkatímum eða á námskeiðum.
Myndataka
- Vocalist áskilur sér rétt til að taka myndir og myndbönd af viðskiptavinum í húsum Vocalist og á viðburðum tengdum starfseminni til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á söngskólanum Vocalist. Ef iðkendur eða forráðamenn ungmenna undir 18 ára fara fram á að ekki séu teknar myndir í slíku skyni, skal láta Vocalist vita af því með skriflegum hætti.