Þetta námskeið hentar öllum þeim sem vilja kynnast röddinni sinni betur og fá grunnþekkingu á tækninni Complete Vocal Technique (CVT). Námskeiðið er í 12 vikur og byggist upp á hóptímum einu sinni í viku, upptöku á einu demo lagi í stúdíó (valkvætt og greitt aukalega) og síðan verða haldnir tónleikar í lok námskeiðsins.
Í fyrstu tveimur tímunum er farið ítarlega í alla helstu grunnþætti CVT með fyrirlestrum og æfingum og eftir það fer hver og einn að vinna tækni og túlkun í gegnum sín lög með kennara. Hópkennsla hefur gefið mjög góðan árangur því þá eru allir að læra af hinum í leiðinni og einnig þjálfa sig í að syngja fyrir framan aðra. Síðan myndast oft góð stemmning og samkennd í hópnum og fær einstaklingurinn mikla hvatningu frá hinum þátttakendunum.
Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna því söngvaranum er mætt þar sem hann er staddur í söngnum. CVT er mjög góð tækni sem hentar fyrir alla söngstíla, alveg frá óperusöng til þungarokks. Píanóleikari verður til staðar hluta námskeiðsins. Hámarksfjöldi í hóp er 9 og lágmarksaldur er 16 ára.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Góð undirstaða í Complete Vocal Technique (CVT)
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Öndun og stuðning
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Ráð við ýmsum raddvandamálum svo sem hæsi, þreytu, spennu osfrv.
- Túlkun, tjáning og framkoma
- Aukið sjálfsöryggi og hvernig við vinnum á sviðsskrekk
- Að syngja í míkrafón
- Leiðsögn í að taka upp lag í hljóðveri (valkvætt)
- Framkoma á tónleikum
Praktísk atriði:
- Hvenær: Fimmtudagar kl. 18:30-20:30/21:30 (fer eftir þátttöku)
- Hvar: Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
- Fullt verð: 139.900 (10% snemmaskráningar afsláttur gildir til 6. ágúst 2024)
- Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
- Greiðslumöguleikar: Hægt er að greiða með korti eða Netgíró.
- Kennarar: Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarson
- Styrkir: Athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort þú eigir rétt á styrk
- Hámarksfjöldi í hóp: 9 manns
- Aldurstakmark: 16 ára og eldri
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 19. SEPTEMBER 2024