Þetta er skemmtilegt og uppbyggjandi 12 vikna námskeið fyrir 13-16 ára ungmenni þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einungis eru að hámarki 4 saman í hóp og er þannig námskeiðið mjög einstaklingsmiðað. Hver þátttakandi velur sér 2 lög til að vinna með á námskeiðinu og í lokin verða haldnir tónleikar þar sem aðstandendur eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig verður lögð áhersla á kórsöng og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngva og tveggja radda útsetningar. Þau þjálfast líka í leiklistarspuna og ýmsum skapandi leikjum sem hjálpa þeim að brjótast útúr skelinni og finna hugrekki til að koma fram. Lokatónleikarnir eru teknir upp og fá þátttakendur upptökuna í lok námskeiðs.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Grunnatriði í Complete Vocal Technique
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Túlkun og tjáning
- Sviðsframkoma
- Textaskilningur
- Syngja saman í kór (radda)
- Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk
- Að syngja í míkrafón
Praktísk atriði:
- Hvenær: Hópur 1: Fimmtudagar kl. 15:20-16:20
- Hvar: Víkurhvarfi 1
- Lengd námskeiðs: 12 vikur
- Verð: 67.410 kr. (10% afmælis afsláttur gildir af öllum námskeiðum í tilefni af 10 ára afmæli Vocalist)
- Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
- Greiðslumöguleikar: Skráning fer fram í gegnum Abler. Hægt er að dreifa greiðslu í 4 hluta.
- Frístundarstyrkir: Hægt er að nýta frístundarstyrki hjá öllum bæjarfélögum á Höfuðborgarsvæðinu.
- Kennari: Nánar auglýst síðar
- Hámarksfjöldi í hóp: 4
- Aldurstakmark: 13-16 ára
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 19. SEPTEMBER 2024
SKRÁNING ER HAFIN!