Skemmtilegt og uppbyggjandi 12 vikna námskeið fyrir 8-12 ára (3.-7. bekkur) þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina og að auka sjálfstraust einstaklingsins. Einungis eru 4-6 saman í hóp og er þannig námskeiðið mjög einstaklingsmiðað. Hver og einn velur sér 2 lög til að vinna með á námskeiðnu og einnig verða æfð saman kórlög til að þjálfa tóneyrað og syngja í röddum. Farið er í ýmsa skapandi leiki eins og leiklistarspuna í þeim tilgangi að hjálpa þeim að brjótast útúr skelinni og umfram allt hafa gaman. Í lokin verða síðan haldnir tónleikar þar sem aðstandendur eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn og fá þátttakendur upptöku frá þeim afhenta í lok námskeiðs.
Það sem söngvarinn lærir er meðal annars:
- Kynnast röddinni sinni betur og möguleikum hennar
- Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
- Túlkun og tjáning
- Sviðsframkoma
- Textaskilningur
- Syngja saman í kór (radda)
- Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk
- Að syngja í míkrafón
Praktísk atriði:
- Hvenær: HÓPUR 1: Fimmtudagar kl. 17:20-18:10 HÓPUR 2: Fimmtudagar kl. 16:25-17:15
- Hvar: Víkurhvarf 1
- Lengd námskeiðs: 12 vikur
- Verð: 62.910 kr. (10% afmælis afsláttur gildir af öllum námskeiðum í tilefni af 10 ára afmæli Vocalist)
- Staðfestingargjald: 20% af heildarverði og er óafturkræft. Ef afbókun berst áður en að námskeiðið hefst er mismunurinn endurgreiddur. Eftir að námskeið hefst fást skólagjöld ekki endurgreidd.
- Greiðslumöguleikar: Skráning fer fram í gegnum Abler. Hægt er að dreifa greiðslu í 4 hluta.
- Frístundarstyrkir: Hægt er að nýta frístundarstyrki hjá öllum bæjarfélögum á Höfuðborgarsvæðinu.
- Kennari: Nánar auglýst síðar
- Hámarksfjöldi í hóp: 6
- Aldurstakmark: 8-12 ára
NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 19. SEPTEMBER 2024
SKRÁNING ER HAFIN!